Skipulags- og byggingamál

Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita

Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita er byggðasamlag sveitarfélaganna Grímsnes- og Grafningshrepps, Bláskógabyggðar, Hrunamannahrepps, Skeiða- og Gnúpverjahrepps, Flóahrepps og Ásahrepps.


Byggðasamlagið hefur fyrst og fremst það hlutverk að annast lögbundin verkefni byggingarfulltrúa og skipulagsfulltrúa.

Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa eru alla jafna 1. og 3. miðvikudag í mánuði utan júlímánaðar þegar fundir falla niður vegna sumarfría.

Fundir skipulagsnefndar eru alla jafna 2. og 4. miðvikudag í mánuði utan júlímánaðar þegar fundir falla niður vegna sumarfría.

Fullnægjandi gögn þurfa að hafa borist í síðasta lagi í lok þriðjudags í vikunni fyrir fund til að mál verði tekið fyrir.

 

Afgreiðslutími á skrifstofu embættisins að Dalbraut 12 á Laugarvatni er frá kl. 9.00 til 12.00 alla virka daga.

Síma- og viðtalstímar skipulagsfulltrúa, byggingarfulltrúa og aðstoðarmanna þeirra er milli klukkan 9.00 og 12.00 á mánudögum, þriðjudögum, fimmtudögum og föstudögum.

Mælst er til þess að fundir séu bókaðir fyrirfram með því að hringja á símatíma í síma 480-5550.

Byggingarfulltrúi: Davíð Sigurðsson
Dalbraut 12 / 840 Laugarvatn
sími: 480-5550
Viðtals- og símatímar 9.00-11.30 mánudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga.
netfang: david@utu.is

Skipulagsfulltrúi: Vigfús Þór Hróbjartsson
Dalbraut 12 / 840 Laugarvatn
sími: 480-5550
Viðtals- og símatímar 9.00-11.30 mánudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga.
netfang: vigfus@utu.is

Fundargerðir og allar frekari upplýsingar og eyðublöð má nálgast á www.utu.is og/eða hjá skrifstofu Flóahrepps í síma 480-4370 frá kl. 9.00-13.00.

Einnig má fá frekari upplýsingar hjá skipulags-og/eða byggingarfulltrúa í síma 480-5550 frá kl. 9.00-12.00.

 

Fulltrúi Flóahrepps í skipulagsnefnd Uppsveita er Walter Fannar Kristjánsson, walter@floahreppur.is 

 

Heimasíða Umhverfis- og tæknisviðs Uppsveita

 

Kortasjá Suðurlands