Flóaljós

Flóaljós, Þingborg - 801 Selfoss

kt. 490118-0980 - Vsk.nr.130363

Flóaljós er fyrirtæki í eigu sveitarfélagsins Flóahrepps sem annast lagningu ljósleiðara í dreifbýli sveitarfélagsins. Flóaljós er rekið sem deild innan sveitarfélagsins og því alfarið á ábyrgð þess og hefur sveitarstjórn yfirumsjón með Flóaljósi.

Ljósleiðarakerfið er alfarið í eigu sveitarfélagsins.

Inntak hinnar opinberu þjónustu sem Flóaljósi er ætlað að framkvæma og veita er að tengja öll heimili, fyrirtæki og sumarhús í sveitarfélaginu, sem svo kjósa og eru ekki þegar tengd, við ljósleiðaranet (FTTH, e. Fiber To The Home) og mun gera öllum íbúum sveitarfélagsins mögulegt að hafa aðgang að háhraða ljósleiðaratengingu. Verkefnið tekur til þess svæðis innan sveitarfélagsins þar sem ljósleiðari hefur ekki þegar verið lagður.

Flóaljós er fjármagnað af sveitarfélaginu, þeim tekjum sem af þjónustunni hljótast og með styrk frá íslenska ríkinu.

Áætlanir miðast við að lagningu ljósleiðarakerfis um allt dreifbýli Flóahrepps ljúki á árinu 2019.

Heimasíða Flóaljóss

Mynd: Ólafur Ingi Ólafsson, Halakoti 2023